Hoppa í vörulýsingu
1 af 3

DIMM

Peshtemal Stripe handklæði · svart

Peshtemal Stripe handklæði · svart

Verð áður 3.590 kr.
Verð áður Verð með afslætti 3.590 kr.
-Liquid error (snippets/price line 129): Computation results in '-Infinity'% Uppselt
Litur

Peshtemal eru tyrknesk handklæði sem voru upphaflega notuð í baðhúsum. Þau eru handofin í Tyrklandi úr hágæða bómull eftir hefðbundnum vefnaðar aðferðum og eru með handhnýttu kögri.

Það sem einkennir Peshtemal handklæðin er að þau eru þynnri og léttari en venjuleg handklæði, draga hraðar í sig raka, þorna hraðar og taka minna pláss í skápum og eru þar af leiðandi mun umhverfisvænni.

Peshtemal handklæðið er því tilvalinn ferðafélagi í líkamsræktina, sundlaugina, á ströndina eða sem teppi í lautarferð. Þau eru einnig mjög hentug til notkunar á heimilinu í stað venjulegra handklæða og ekki skemmir fyrir að þau eru einstaklega falleg. Peshtemal virka mjög vel sem rúmteppi á minni rúm, sem ungbarnateppi og í raun hvað sem manni dettur í hug.

100% hágæða bómull

Stærð: 95 x 170 cm + kögur, 275 grömm.

Framleidd í Tyrklandi

Þvottaleiðbeiningar

Þvoið handklæðin við 30° (að minnsta kosti einu sinni áður en þau eru tekin í notkun). Hvorki má nota klór né mýkingarefni því það dregur úr rakadrægni og ekki má setja þau í hreinsun.

Handklæðin má þurrka í þurrkara og strauja við lágan hita. Við mælum með að skella handklæðunum í þurrkara í örstutta stund og hengja svo upp þannig að þau haldist slétt.

Handklæðin verða mýkri og rakadrægari með hverri notkun og því mælum við með að þvo þau 2-3 skipti áður en þau eru notuð til að fá sem bestu upplifunina.

Heimsending

Fáðu sent með Dropp eða Póstinum. Frí heimsending ef pantað er fyrir 15.000 kr eða meira!

Skilaréttur

Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.

Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.

Skoða nánar