Skilmálar

Upplýsingar

DIMM
Ármúli 44
108 Reykjavík
S: 519 4251
Kt: 500317-1670
Reikningsnr. 0358-26-000985
Netfang: dimm@dimm.is / verslun@dimm.is
Instagram: http://instagr.am/dimmverslun
Facebook: http://fb.me/dimmverslun
Messenger: http://m.me/dimmverslun

Afhending og áhættuskipti

Afgreiðslutími pantana er 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.

Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Hægt er að sækja pantanir í verslun Dimm í Ármúla 44. Verslunin er opin frá 11-18 alla virka daga og 11-16 á laugardögum.

Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur sannanlega innt greiðslu af hendi. Dimm ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhent kaupanda.

Sæki kaupandi vöru ekki á tilsettum tíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann ber ábyrgð á, flyst áhættan yfir á kaupanda þegar hlutur er honum til reiðu á umsömdum afhendingarstað. Ef samið hefur verið um annan afhendingarstað en hjá seljanda flyst áhættan yfir til kaupanda þegar varan er afhent á umsömdum tíma og stað og kaupanda er kunnugt um að varan er tilbúin til afhendingar.

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.

Greiðsla og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, American Express, Netgíró eða með millifærslu. Einnig er hægt að greiða með Pei og Aur. Vinsamlega hafið samband í gegnum email (dimm@dimm.is) eða Messenger (http://m.me/dimmverslun) til að ganga frá greiðslu með Pei eða Aur. Í verslun Dimm er hægt að greiða með Netgíró, Pei og Aur og öllum greiðslukortum nema American Express.

Ef greitt er með Netgíró eða með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Dimm tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíðu Netgíró. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). Lágmarkskaup fyrir raðgreiðslur er 15.000 kr.

Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Oscuro ehf. innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á verslun@dimm.is. Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild. Reikningsnúmer er 0358-26-000985, kt. 500317-1670.

Aur númer Dimm er 123 774 5382.

Sendingakostnaður er reiknaður í greiðsluferli. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 15.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Nánar um afhendingarleiðir.

Verð

Dimm áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Vöruskil

Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Dimm.

Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á dimm@dimm.is en getur einnig nýtt sér staðlað uppsagnareyðublað sem finna má hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/435-2016

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á dimm@dimm.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Öll umferð um dimm.is er dulkóðuð yfir örugga tengingu (HTTPS). 

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á dimm@dimm.is

Vefverslunin DIMM er rekin af Oscuro ehf., lögheimili Hörpulundi 2, 210 Garðabæ, kt. 500317-1670, VSK númer 127551.