Vöruflokkur: Mottur

Mottur fyrir öll rými heimilisins – stofuna, forstofuna, eldhúsið og pallinn. Í stofuna bjóðum við ullarmottur og hempmottur sem gefa hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð. Norsku motturnar frá Heymat eru svo harðgerðar að þær má nota jafnt úti sem inni og mega fara í þvottavél – fullkomnar sem forstofu- og dyramottur. Vínylmotturnar frá sænska hönnuðinum Lina Johansson eru mjúkar, fallegar og auðvelt að þrífa og henta vel í eldhúsið.