Vöruflokkur: Stjörnumerki
Stjörnumerkjamyndirnar eru samstarfsverkefni Dimm og Krot dagsins. Helga Valdís er grafískur hönnuður og listakonan á bakvið Krot dagsins – hún er meðal annars þekkt fyrir flesta íslensku „giphy“ límmiðana sem fólk notar í story á samfélagsmiðlum. Nú hefur hún teiknað öll tólf stjörnumerkin á sinn einstaka hátt.
Hvert stjörnumerki fæst í þremur litum – bleiku, bláu eða brúnu – og myndirnar koma í eikarramma frá ChiCura, annaðhvort svörtum eða ljósum, með glampavörn.
Stjörnumerkjamynd er persónuleg og falleg gjöf sem fylgir barninu inn í framtíðina – vinsæl sem skírnargjöf, sængurgjöf eða afmælisgjöf. Skoðaðu fleiri skírnargjafir eða allar vörur frá Krot dagsins.