Hoppa í vörulýsingu
1 af 3

Crema di Nocciole súkkulaðikrem 60%

Crema di Nocciole súkkulaðikrem 60%

Made by mama

Verð áður 1.990 kr.
Verð áður Verð með afslætti 1.990 kr.
Uppselt

Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000 kr.

Til á lager

Í Piedmont er að finna bestu heslihnetur Ítalíu. Þar af leiðandi var það einnig hér sem við urðum að finna rétta Nocciolata (Súkkulaði krem úr heslihnetum) fyrir Made by Mama.

Ríkulegt bragð af hnetum frá Piemonte og dökku kakói er ráðandi í þessu heslihnetusmjöri. Það er minna sætt en hefðbundið súkkulaðismjör og gefur djúpt bragð af ristuðum heslihnetum og dökku súkkulaði í fullkomnu jafnvægi.

Ljúffenga Nocciolatað okkar er búið til úr ítölskum heslihnetumfrá Piemonte I.G.P (60%), sykri (30%) og ósykruðu kakó (10%). Engin rotvarnarefni, aukaefni eða pálmaolíu er að finna í því. Engin óþörf aukefni. Bara ríkulegt og ekta bragð af heslihnetum og súkkulaði sem gefa mjúka og rjómakennda áferð

Það er fullkomið á nýbakað brauð, á hitað croissant, til að smyrja á kökur, eða nota sem lag á milli kökubotna, út á ís eða pönnukökur. 

Í hjarta Asti Monferrato liggur Fratelli Durando bóndabærinn. Þau hafa verið að framleiða I.G.P. vottaðar heslihnetur af tegundinni Tonda Gentile Trilobata, síðan 2008. Fratelli Durando var stofnað árið 1884 og er rekið af langömmubarninu Söru og Alessandro manninum hennar. Þau búa á miðri ekrunni og rækta sínar eigin hnetur. Sara og Alessandro hófu framleiðslu Nocciolata vegna þess þau vildu nota heslihneturnar með náttúrulegum hætti svo hægt væri að varðveita góðu eiginleika hnetunnar (heslihnetur eru ríkar af trefjum, B og E vítamíni og magnesíum). Þau prófuðu sig áfram í eldhúsinu heima hjá sér út frá þeim forsendum að einu hráefnin sem nota mætti í uppskriftina væru heslihnetur, kakó og sykur. Til að tryggja samræmda ristun eru heslihneturnar hreinsaðar og ristaðar í infrarauðum ofni. Það eykur einnig bragðið og ilminn. Ristuðu heslihneturnar eru hreinsaðar á okkar eigin hreinsunarstöð, þar sem Nocciolata súkkulaðið er fullgert með því að bæta við sykri og kakó.

Innihald: Heslihnetur 60% (Piemonte I.G.P.), hrásykur, kakó, sólblómalecitín.

Stærð 180 gr. 

Næringargildi á 100 g:

  • Orka: 2.259 kJ / 540 kcal
  • Fita: 36,5 g
    • þar af mettaðar fitusýrur: 4,3 g
  • Kolvetni: 39,9 g
    • þar af sykur: 36,3 g
  • Prótein: 10,1 g
  • Salt: 0,0064 g

Heimsending

Fáðu sent með Dropp eða Póstinum. Frí heimsending ef pantað er fyrir 15.000 kr eða meira!

Skilaréttur

Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.

Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.

Skoða nánar