Hoppa í vörulýsingu
1 af 2

Pesto Genovese · 130gr

Pesto Genovese · 130gr

Made by mama

Verð áður 1.251 kr.
Verð áður 1.390 kr. Verð með afslætti 1.251 kr.
-10% Uppselt

Frí heimsending af pöntunum yfir 15.000 kr.

Til á lager

Upplifðu klassískt Pesto alla Genovese, handgert úr fersku Genovese D.O.P. basilíku (ekta ítalskri basilíku frá Liguria), ólífuolíu, fræjum og hnetum. Græna pestóið okkar er kraftmikið og bragðmikið, algjörlega án osts. Það hentar einnig vegan-fólki og þeim sem eru með laktósaóþol.

Handgert eftir hefðbundinni fjölskyldu­uppskrift með 22% ferskri Genovese D.O.P. basilíku með litlum, ilmríkum laufum. Enginn ostur, fullkomið fyrir vegan og laktósalaust mataræði. Tilbúið til notkunar fyrir pasta, bruschettu, salöt, marineringum og ídýfum

Fullkomið með:

Pestóið er tilbúið til notkunar beint úr krukkunni og getur á einfaldan hátt fært hversdagsréttina þína nær Liguria.

  • Blandaðu því saman við nýsoðið pasta ásamt dálitlu af suðuvatninu
  • Smyrðu því á ristað brauð eða bruschettu
  • Hrærðu því út í salatdressingar eða kartöflusalat
  • Notaðu það sem álegg á pítsu eftir bakstur
  • Hrærðu matskeið út í jógúrt eða sýrðan rjóma fyrir létta sósu/dressingu.

Sniðug ráð!

Eftir opnun er sniðugt að slétta yfirborðið og bæta við þunnu lagi af ólífuolíu yfir. Það hjálpar til við að varðveita lit og bragð.
Þú getur líka fryst pestóið í litlum skömmtum (til dæmis í klakaformi), svo þú eigir alltaf bragð af Liguria tilbúið í pasta, á pítsu eða í ídýfur.

Pestó Genovese (með basilíku)

Innihaldsefni: Ólífuolía, kasjúhnetur, Genovese-basilíka DOP 22%, salt, furuhnetur.

Næringargildi á 100 g:

  • Orka: 2.507 kJ / 608 kcal
  • Fita: 59 g
    • þar af mettaðar fitusýrur: 11 g
  • Kolvetni: 7,8 g
    • þar af sykur: 1,5 g
  • Prótein: 9,6 g
  • Salt: 3,4 g

Geymsla: Geymið í kæli við 4 °C eftir opnun. Neytist innan 5-6 daga frá opnun.

Heimsending

Fáðu sent með Dropp eða Póstinum. Frí heimsending ef pantað er fyrir 15.000 kr eða meira!

Skilaréttur

Skilafrestur er 14 dagar. Vörunni fæst einungis skilað gegn framvísun kvittunar eða pöntunarnúmers.

Nánari upplýsingar um vöruskil má finna í skilmálum.

Skoða nánar